Sælt veri fólkið, þjáist af alvarlegum trega þessa daganna og
hef hreinlega ekki nennt að skrifa neitt hérna inná. Svo sem lítið
að frétta er bara að vinna og í skólanum. Sjónvarpið er minn besti
vinur þessa daganna, ég HATA hvað stöð 2 er með góða dagskrá langt
fram eftir nóttu.
Formúlan var svo að byrja núna aftur þetta árið, við fjölskyldan
erum svo mikil nörd að við erum að taka þátt í alþjóðlegri keppni á
netinu, erum búin að stofna deild og alles, hittumst alla
keppnisdaga og rökkum hvort annað niður, skemmtilegt! Áfram
Hraunbúar, meira helvítis bullið.
Er svo komin á fullt með B.A.verkefnið mitt sem er um homma og
lesbíur og hvort samkynhneigð sé meðfædd eða áunnin,
spennandi!!!!!!!!!! Ef einhver samkynhneigður les þetta blogg þá má
hann/hún hafa samband við mig ef áhugi er á að taka þátt í
rannsókninni. Get sjálf ekki myndað mér eina skoðun á þessu, þ.e.
hvort kynhneigð sé mótuð af umhverfinu eins og t.d ofbeldishneigð
eða meðfædd, gæti jafnvel verið bæði eða hvað???? Vá ég ætla svo
sem ekki að drepa fólk úr leiðindum með
þessu....................
Það er svo hittingur í kvöld stelpur hjá Saló og það er meira að
segja bakkelsi í boði hef ég heyrt, það ætti nú að tryggja góða
mætingu hehehehe. Svo allar að mæta þangað. Inga Dís!!!!!!!!!!þú
mátt svo fara að koma með góða sögu frá heimsókninni sem þú fékkst
OK?
Svo er ég með tvo ógó sæta kettlinga gefins fyrir þá sem vilja
kött annar kolsvartur og hinn bröndóttur, frekar loðnir. Látið vita
ef þið viljið.
Annars sjaumst við bara í kvöld og váááá hvað þetta er örugglega
leiðinleg lesnins, sorry! kem með betri færslu næst.